„Þúsundir einstaklinga og lögaðila hafa nú óumbeðið fengið það hlutverk að fjármagna starfsemi Icelandair Group,“ segir Stefán Einar Stefánsson, viðskiptafréttastjóri á Morgunblaðinu, í pistli í ViðskiptaMogganum í dag.
Stefán Einar gagnrýnir þar Icelandair og bendir á að þeir sem í raun fjármagni nú félagið séu einstaklingar sem hafa pantað flug á síðustu mánuðum, flug sem fellt hefur verið niður vegna COVID-faraldursins.
„Stór hluti þeirra sem Icelandair hefur leitað til hefur fallist á að þiggja „inneign“ í stað flugfargjaldsins sem engri þjónustu skilaði. Hlaðast þær inneignir nú upp sem skuld í bókum félagsins og ljóst að það mun þurfa að fljúga með þúsundir farþega til og frá landinu á komandi misserum án þess að hljóta frekari greiðslu fyrir. Það verður mögulega léttvægt fyrir félagið meðan eftirspurn helst veik en mun reyna meira á þegar sætanýting tekur að aukast á nýjan leik. Hins vegar hafa þúsundir farþega krafið félagið um endurgreiðslu, sem þeir eiga skýlausan rétt til.“
Stefán Einar segir að endurgreiðslukrafan nemi milljörðum króna nú þegar og lögum samkvæmt beri félaginu að endurgreiða miðaverðið að fullu innan sjö daga frá því að krafa þar um er lögð fram. Segir Stefán Einar að fáir hafi fengið endurgreitt frá Icelandair síðan um miðjan mars.
„Félagið segir ósatt þegar það heldur því fram að álag á skrifstofum félagsins valdi töfunum. Hið rétta er að sviðnir viðskiptavinirnir eru látnir fjármagna félagið. Það er hins vegar ekki þeirra hlutverk. Er félag sem svona gengur fram á vetur setjandi?“