Stefán Einar hneykslaðist á klæða­burði Björns: Svona svaraði Björn honum

Stefán Einar Stefáns­son, frétta­stjóri við­skipta á Morgun­blaðinu, hneykslaðist yfir klæða­burði Björns Levís Gunnars­sonar, þing­manns Pírata, þegar sá síðar­nefndi tók sæti for­seta Al­þingis á þing­fundi í gær­kvöldi.

Þor­steinn Sæ­munds­son, þing­maður Mið­flokksins, birti mynd af Birni á Face­book-síðu sinni þar sem hann sást í for­seta­stólnum klæddur í skyrtu, jakka og galla­buxur. „Febrúar er mánuðurinn þegar bindin koma út,“ sagði Þor­steinn í færslu sinni.

Stefán Einar virtist veru­lega hneykslaður á þessu og sagði orð­rétt undir færslu Þor­steins:

„Lág­kúra og til marks um að nú­verandi for­seti hefur enga stjórn á málum. Hann á ein­fald­lega ekki að hleypa manninum í stólinn eins og um­renningi. Þetta er ekki van­virðing við Stein­grím heldur þing­ræðið og elstu stofnun landsins.“

Björn Leví hefur nú sjálfur svarað þessari at­huga­semd Stefáns Einars og gerir það af nokkurri hörku.

„Mér er bara slétt sama hvað þér finnst um út­lit og klæða­burð og hvernig það tengist virðingu. Ég er hér að vinna sam­kvæmt sann­færingu minni eins og kveðið er á um í stjórnar­skrá. Þú mátt alveg móðgast yfir því. Það er er ekki mitt vanda­mál.“

Febrúar er mánuðurinn þegar bindin koma út.

Posted by Þorsteinn Sæmundsson on Þriðjudagur, 2. febrúar 2021