Stefán Einar harðorður: „Henni er augljóslega slétt sama um þetta fólk“

Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, er býsna harðorður í grein sem hann skrifar á baksíðu ViðskiptaMoggans í dag.

Þar gerir Stefán Einar deilur ASÍ og Play að umtalsefni, en eins og kunnugt er hefur ASÍ sakað hið nýja flugfélag um að undirbjóða laun starfsfólks til að geta haldið fargjöldum lágum. Play hefur brugðist hart við þessu og lagt fram gögn sem sögð eru sýna annað.

Drífa Snædal, forseti ASÍ, hefur haft sig nokkuð í frammi og fær hún vænar pillur frá Stefáni Einari í grein hans í dag. Segir hann að hún hafi farið „meira en mikinn í árásum sínum“ gegn Play að undanförnu.

„Hefur hún gert grímulausa tilraun til þess að fella fyrirtækið og valda með því gríðarlegu tjóni, bæði fyrir hluthafana (sem m.a. eru lífeyrissjóðir) en einnig það starfsfólk sem á vettvangi félagsins starfar. Henni er augljóslega slétt sama um þetta fólk og lífsviðurværi þess. En hvað skýrir þessa heift? Er það hina ósvikna ást á íslenskum launamönnum eins og hún sjálf heldur fram? Varla og næsta örugglega ekki,“ segir Stefán Einar.

Hann segir að hún hafi ítrekað opinberað hvað vakir fyrir henni í þessu „eins manns stríði“ eins og hann orðar það.

„Hún hyggst knýja Play til þess að semja við félag sem á aðild að ASÍ. Henni þykir ótækt að nokkur standi utan þess og semji fyrir hönd vinnandi fólks. Að því leytinu hegðar forsetinn sér eins og ESB. Þeir sem vilja ekki liggja undir verndarvæng þess skulu barðir uns þeir koma sér nauðugir í skjólið. Í öllum hamaganginum hefur forsetinn hins vegar ítrekað misstigið sig svo eftir er tekið,“ segir hann.

Vísar Stefán Einar meðal annars í viðtal við Drífu á Sprengisandi um helgina. Segir Stefán Einar að þar hafi hún lýst því yfir að forgangsréttarákvæði í samningum Play og flugfreyja væru ekki pappírsins virði.

„Það er stórmerkileg yfirlýsing og maður spyr sig hvort formenn félaga iðnaðarmanna séu sammála þeirri túlkun forsetans. Eru forgangsréttarákvæði ekkert til að byggja á? Hvað ætli Félag íslenskra atvinnuflugmanna segði við því? Þótt forseta ASÍ þyki ekki ástæða til að spyrja forsvarsmenn þess félags, þar sem það á ekki aðild að ASÍ, gæti það reynst einnar messu virði. Að minnsta kosti hljóta forsvarsmenn Icelandair að hafa hoppað hæð sína undir yfirlýsingum forsetans.“