„Sóttvarnalæknir hefur varað sérstaklega við fylleríi. Veiran á greiða leið milli þeirra sem tala hátt og gleyma hinni gullnu tveggja metra reglu. Lýðheilsufræðingar hoppa hæð sína og sjá tvær flugur slegnar dauðar í einu höggi. En fylleríið er víða.“
Svona hefst pistill Stefáns Einars Stefánssonar, fréttastjóra viðskipta á Morgunblaðinu, í ViðskiptaMogganum í dag. Í pistlinum segir hann að vinstrimenn hoppi nú hæð sína þegar yfirlýsingar berast hvaðanæva um að nú eigi hið opinbera að eyða peningum – jafnvel þeim sem ekki eru til.
„Allt til þess að örva hálflamað hagkerfi sem hið opinbera hefur stöðvað með handafli. Vissulega eru sterk rök fyrir því að ríkissjóðir sem standa þokkalega (eins og sá íslenski) beiti afli sínu og haldi þrýstingnum á kerfinu, sem helst minnir á sprungna blöðru. En í slíku átaki verður að vanda til verka og tryggja að fjármagninu sé veitt í fjárfestingar og uppbyggingu sem síðar mun skila verðmætum inn í samfélagið,“ segir Stefán Einar.
„Forsjárhyggjufólkið sem telur að ríkið eigi helst að taka öll verðmætin í landinu og úthluta þeim eftir réttlætisreglum þeirra sjálfra, lítur hins vegar svo á að búið sé að undirrita óútfylltan tékka til að uppfylla alla þeirra villtustu drauma. Slíkt gönuhlaup er fyllerí sem aðeins getur endað á einn veg – með vondum timburmönnum og eftirsjá,“ segir hann.