Stefán Einar fagnar því ef eig­endur græða á Fjaðrár­gljúfri: „Hóf­­legt gjald fyrir að­­gengi að náttúrunni tryggir þessa staði best til fram­búðar.“

Stefán Einar Stefáns­son, sem sér um Dag­mál þættina á mbl.is, segir það góð tíðindi að öllu leyti Fjaðrár­gljúfur sé að seljast fyri dag­góða upp­hæð og að ríkið sé ekki kaupandi „enda er það einn verst eig­andi að náttúru­­perlum sem hugast getur.“

Hann segir einnig já­kvætt að stefnt skuli að frið­­lýsingu ogdeilir frétt Frétta­blaðsins frá því í dag um málið en þar segir að Guð­laug­ur Þór Þórð­ar­­son, um­­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herr­a og kaup­and­i jarð­ar­inn­ar Heið­i í Skaft­ár­hrepp­i hafi und­ir­­rit­að með sér sam­kom­u­lag um frið­­lýs­ing­u.

Er það mat ráð­u­neyt­is­ins að vernd­ar­þörf á svæð­in­u sé tals­verð vegn­a mik­ils á­­gangs ferð­a­mann­a en hægt sé að ná mark­mið­um vernd­ar án þess að rík­ið gang­i inn í kaup­in.

Með frið­­lýs­ing­u svæð­is­ins og sam­kom­u­lag­i við nýj­an eig­and­a verð­ur vernd svæð­is­ins og nauð­­syn­­leg upp­­bygg­ing sam­eig­in­­legt verk­efn­i rík­is­ins og nýs eig­and­a.

Inn­heimt­a gjald­a skal ekki verð­a til þess að skerð­a eða tálm­a frjáls­a för ein­stak­ling­a, sem ekki nýta bíl­a­­stæð­ið um hið frið­­lýst­a svæð­i, eða grann­­svæð­i þess sam­­kvæmt regl­um nátt­úr­u­vernd­ar­lag­a um al­mann­a­rétt.

„Svo verðum við að treysta því að gjald­töku verði komið á þarna til þess að fjár­­magna við­hald og upp­­byggingu. Gjald­­taka, hvort sem það er við Kerið í Gríms­nesi eða í þjóð­­garðinum á Þing­­völlum, hefur sannað sig og við þurfum að auka hana um allt land. Hóf­­legt gjald fyrir að­­gengi að náttúrunni tryggir þessa staði best til fram­búðar. Enn betra ef eig­endurnir græða á því í leiðinni,“ skrifar Stefán Einar að lokum.