„Það að geta látið sprauta sig en kjósa að gera það ekki er í raun mjög andfélagsleg hegðun,“ segir Stefán Pálsson sagnfræðingur.
Stefán deilir viðtali Björns Inga Hrafnssonar hjá Viljanum við Brynjar Níelsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann lýsir meðal annars þessari skoðun sinni.
Brynjar hefur farið mikinn í umræðunni um COVID-19 en í viðtalinu við Björn Inga sagðist hann ekki ætla að láta bólusetja sig gegn veirunni á næsta ári þó flest bendi til þess að bóluefni verði klárt innan fárra mánaða. Sagðist Brynjar velta því fyrir sér hvort ekki væri skynsamlegra að fara svokallaða hjarðónæmisleið í baráttunni.
Stefán gefur lítið fyrir þetta en hann segir í færslu sinni:
„Einu sinni var ég ungur og vitlaus og hugsaði með mér: ég afþakka flensusprautur, því ég er ágætur til heilsunnar og ekkert of góður til að veikjast. Betra að skilja eftir bóluefnið fyrir þá heilsuveilu!,“ segir Stefán og bætir við að síðan hafi einhver útskýrt fyrir honum faraldursfræði og hjarðónæmi.
„Þú lætur sprauta þig - ekki bara til að losna sjálfur við að verða veikur heldur til að vernda aðra. Með því að bólusetja þig hjálparðu til við að mynda varnarhjúp um þá sem eru með veiklað ónæmiskerfi og geta mögulega ekki látið bólusetja sig. Það að geta látið sprauta sig en kjósa að gera það ekki er í raun mjög andfélagsleg hegðun.“
Stefán segir að þetta hafi hann ekki fattað fyrr en það var útskýrt fyrir honum. Hann kveðst því ekki vera í neinni aðstöðu til að hneykslast á öðru fullorðnu fólki sem áttar sig ekki á því hvernig hjarðónæmi virkar. Stefán endar pistil sinn á léttu skoti á Brynjar Níelsson.
„En það er óneitanlega óheppilegt að sama fólk telji sig hafa mikið til málanna að leggja í umræðum um viðbrögð við heimsfaraldri og grípi jafnvel sjálft til hugtaksins hjarðónæmis í því sambandi.“