Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hvetur alla starfsmenn Eflingar sem voru reknir í nótt til að sækja um vinnuna sína aftur en Efling hefur nú gert breytingar á kaupum og kjörum starfsmanna, samkvæmt Fréttablaðinu.
„Ég lýsi ánægju með að samkomulag hafi náðst við trúnaðarmenn starfsfólks um framkvæmd breytinganna. Að öðru leyti tel ég að þessi leið hafi verið rétt, skynsamlegt og óhjákvæmileg eins og er rökstutt í greinargerð minni til stjórnar,“ segir Sólveig Anna en í greinargerðinni er farið yfir það hvernig ráðningarkjör breytast hjá félaginu.
Mikið hefur verið fjallað um þessa ákvörðun stjórnar og hafa formenn annarra stéttarfélaga og ASÍ gagnrýnt ákvörðunina. Spurð hvort það sé skilningur innan Baráttulistans, eða hjá henni, á til dæmis gagnrýni formanns ASÍ segir Sólveig Anna að gagnrýni Drífu Snædal hafi verið „fljótfærnisleg, ófagleg og byggð á fáfræði um atriði málsins.“
Hún segir að erfitt sé að sýna því skilning að manneskja í hennar stöðu fari fram með þessum hætti.
„Sama á við um ýmsa aðra forvígismenn stéttarfélaga, sem að mínu mati hafa sýnt ótrúlegan dómgreindarbrest í yfirlýsingum sínum. Vísa að öðru leyti til Facebook síðu minnar þar sem ég hef tjáð mig afdráttarlaust um þetta,“ segir Sólveig Anna í skriflegu svari sínu.
Ekki samið um laun á einstaklingsgrundvelli
Í greinargerðinni, sem Sólveig Anna afhenti stjórn á fundi á mánudag og Fréttablaðið hefur undir höndum, kemur fram að til dæmis að grunnlaun eigi að endurspegla ábyrgð og að tekið verður upp launakerfi sem á að setja viðmið fyrir regluleg grunnlaun allra starfsmanna út frá starfsheiti hvers og eins.
„Hvert starfsheiti fær fyrir fram ákveðinn hámarks- og lágmarks launasetningarstuðul sem staðsetur starfið á kvarða í samanburði við önnur starfsheiti. Ekki á að semja um laun á einstaklingsgrundvelli umfram þessi mörk,“ segir í greinargerðinni.
Þá er tekið fyrir öll álög, bónusa og viðbótargreiðslur en sett undantekning á yfirvinnu stjórnenda. Í greinargerðinni er tekið fram að ökutækjastyrkir verða ekki greiddir út nema „raunveruleg ástæða sé til“. Engin föst yfirvinna verður greidd en tekið verður tillit til þess ef fólk þarf að vinna utan dagvinnutíma og þeim greidd eftirvinna sem helst á að taka út í fríi á dagvinnutíma innan tiltekins tímafrests.
Nýtt hámarksbil hæstu og lægstu launa
Í greinargerðinni kemur einnig fram að samkvæmt nýja launakerfinu verður sett nýtt hámarksbil milli hæstu og lægstu launa og samkvæmt því verður bilið aldrei meira en hlutfallið 5/2.
Störf innan félagsins eru innan nýrra flokka sem verða með sitt eigið launabil.
Þá er sérstaklega tekið fram í greinargerðinni að ekki verði lengur í boði ókeypis hádegismatur en í stað þess verði hann niðurgreiddur eða önnur leið fundin til að útvega fólki hádegismat.
Hægt er að lesa umfjöllun Fréttablaðsins um kaup og kjör starfsmanna hér.