Einn þeirra 60 Íslendinga sem hefur greinst með kórónaveiruna starfar í forsætisráðuneytinu. Rósa Guðrún Erlingsdóttir, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, staðfesti þetta í samtali við vef Ríkisútvarpsins.
Í frétt RÚV kemur fram að starfsmaðurinn hafi ekki starfstöð í stjórnarráðshúsinu. Hefur hann ekki átt í samskiptum við ráðherra í ríkisstjórninni né Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Nánar er fjallað um málið á vef RÚV.