Starfsmaður á Landakoti með Covid-19: Sjö á gjörgæslu og 21 á sjúkrahúsi

Starfsmaður á Landakoti greindist um helgina smitaður af COVID-19, en hann hafði verið við störf í vikunni. Strax á laugardagsmorgun hófst umfangsmikil rakning og sýnataka.

Frá þessu er greint á vef Landspítalans.

„Allir sjúklingar deildarinnar skiluðu sýni og voru þau öll neikvæð. Þeir skila nýju sýni í dag, mánudag 23. ágúst 2021. Þeir sjúklingar (5) sem viðkomandi sinnti voru settir í sóttkví sem lýkur með neikvæðu sýni á 7. degi – fimmtudag,“ segir í tilkynningunni.

Tekið er fram að allir starfsmenn deildarinnar hafi skilað sýni um helgina og nú í dag og hafa þau hingað til öll reynst neikvæð. „Hluti starfsmanna deildarinnar er í vinnusóttkví C og munu þeir skila sýni á 4. og 7. degi.“

Þá kemur fram að einn sjúklingur sem var heima í helgarleyfi hafi verið settur í sóttkví en aðrir sem höfðu útskrifast þörfnuðust ekki sóttkvíar.

Deildin er lokuð fyrir innlagnir og ekki verða flutningar á aðrar stofnanir fyrr en allri sóttkví hefur verið aflétt.

Samkvæmt upplýsingum á vefnum covid.is er 21 nú á sjúkrahúsi með Covid-19 og þar af eru sjö á gjörgæslu. 62 innanlandssmit greindust síðastliðinn sólarhring.