Samkaup hleypa seinni hluta 150 milljóna króna aðgerðapakka til starfsmanna sinna af stað í lok mánaðarins.
Starfsmenn verða þá hvattir til að ferðast innanlands í sumar og fá meðal annars gjafabréf fyrir hótelgistingu, bílaleigubíl, á veitingastaði, leikrit eða annarri afþreyingu.
„Við viljum halda í okkar lykilfólk eins og kostur er því þegar hjólin fara að snúast á ný viljum við áfram sjá okkar frábæra starfsfólk standa vaktina með okkur,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa, í tilkynningu sem send var fjölmiðlum.
Hlutabótaleiðin svokallaða hefur verið talsvert í umræðunni og kveðst fyrirtækið ekki hafa nýtt sér hana, þó þurft hafi að loka einni verslun og allt að 70 prósent samdráttur orðið í einhverjum öðrum verslunum þar sem erlendir ferðamenn voru stór hluti viðskiptavina.
„Þrátt fyrir það höfum við ekki nýtt okkur hlutabótaleið ríkisstjórnarinnar heldur fært fólk til í starfi eins og mögulegt er,“ segir Gunnar Egill sem bætir við að starfsfólkið sé mikilvægasti hluti fyrirtækisins og álagið á því hafi verið mikið, sérstaklega þeim sem hafa verið í framlínunni.
„Við viljum því þakka starfsfólkinu fyrir vel unnin störf með aðgerðarpakkanum,“ segir hann.
Þegar kórónuveirufaraldurinn skall á samþykkti stjórn Samkaupa að veita um 150 milljónum króna í aðgerðarpakka til starfsfólks fyrirtækisins. Pakkinn nær til allra starfsmanna Samkaupa sem eru um 1.400 talsins.
Allir starfsmenn fengu auka orlofsdag á launum, verulega aukinn afslátt af matvöru í verslunum fyrirtækisins, mánaðar sjónvarpsáskrift, páskaegg og andlega upplyftingu hjá Heilsuvernd. Um næstu mánaðamót er komið að seinni hluta aðgerðapakkans eins og að framan greinir.