Regnbogafáninn við Grafarvogskirkju hefur orðið fyrir skemmdarverkum í tvígang á skömmum tíma. Skemmdirnar hafa verið kærðar til lögreglu.Þetta kemur fram ífrétt Fréttablaðsins í morgun. Grafarvogskirkja er ekki eini staðurinn á Íslandi þar sem kirkjunnar fólk hefur orðið fyrir aðkasti vegna stuðnings síns við réttindi hinsegin fólks að undanförnu. Pétur G. Markan biskupsritari og Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur fengu á föstudaginn nafnlaust hatursbréf inn um lúguna þar sem þau voru kölluð „krípí fólk“ með „úrkynjaða hegðun“.
Krotað var yfir regnbogafánann á gangstéttinni fyrir framan Grafarvogskirkju í annað skipti á þremur dögum á mánudaginn. Í fyrra skipti var þar ritað „Antichrist!“ og í hið seinna „Leviticus 20, 20:13.“ Í bæði skiptin virðist vera um að ræða hatursskilaboð gegn stuðningi kirkjunnar við réttindi hinsegin fólks.
Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, segir að skemmdarverkið hafi verið tilkynnt til lögreglu. „Ég gerði það ekki eftir fyrra skiptið, þá ákváðum við að gefa þessu séns. En núna hefur þetta verið tilkynnt.“
Þegar fáninn var málaður á gangstéttina voru viðtökurnar að sögn Guðrúnar afar jákvæðar. Eftir að kirkjan birti myndir af skemmdarverkinu á Facebook-síðu sinni segir Guðrún þó að ýmsir hafi lagt orð í belg með sjónarmið af ýmsum toga.
„Það hefur verið heilmikil umræða á Facebook-síðunni þar sem eru skoðanir í fleiri áttir,“ segir Guðrún. „Svo hringdi ein í gær og kvartaði yfir fánanum og fannst hann alveg ómögulegur. Það eru aðeins fleiri að koma fram, þau sem eru ekki ánægð með að kirkjan taki þessa afstöðu.“
Hægt er að lesa viðtalið við Guðrúnu í Fréttablaðinuhér.