Starfaði að útflutningsmálum í hartnær 50 ár

Margir kannast við nafnið Þráinn Þorvaldsson en hann er rekstrarhagfræðingur að mennt og kom á árum áður víða við í atvinnulífinu. Hann hafði nýlokið viðskiptafræðinámi á 7. áratugnum þegar Pálmi Jónsson, kaupmaður og stofnandi Hagkaup, fékk hann til að „skreppa“ norður á Sauðárkrók til að koma á fót sútunarverksmiðjunni Loðskinn sem Pálmi var stærsti eigandi að. Eftir það kom Þráinn víða við í atvinnulífinu því nokkrum árum síðar eftir framhaldsnám í markaðs- og sölufræðum í Bretlandi var hann ráðinn sem framkvæmdastjóri Hildu hf. en eigendur þess fyrirtækis voru hjónin Hanna og Tom Holton. Aðalverkefnið var að kynna afurðir fyrirtækisins á Bandaríkjamarkaði auk þess að vinna með fjölda saumastofa hér á landi. Eftir áralangt starf hjá Hildu söðlaði Þráinn um og hóf störf hjá hinu opinbera þegar hann var ráðinn framkvæmdastjóri Útflutningsmiðstöðvar Iðnaðarins, síðar fyrsti framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Ísland sem nú heitir Íslandsstofa. Eftir starfslok þar stundaði Þráinn ýmis ráðgjafastörf og síðan framkvæmdastjóri Íslensks fransks eldhúss sem nú er hluti af Norðanfiski á Akranesi og síðan einn af stofnendum og framkvæmdastjóri SagaMedica þar til hann settist í helgan stein á síðasta áratug. Í samtali við Sigurð K. Kolbeinsson þáttastjórnanda greinir Þráinn frá því þegar hann greindist með krabbamein í blöðruhálsi rétt eftir aldamótin en komst blessunarlega í gegnum þá baráttu sem varð m.a. til þess að hann stofnaði Framför, krabbameinsfélag karla, ásamt fleiri góðum mönnum. Framför hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og hefur nú aðsetur í húsi Krabbameinsfélags Íslands í Skógarhlíð þar sem fastráðinn starfsmaður stýrir félaginu, svarar síma og tekur á móti þeim sem leita sér aðstoðar eftir greiningu.

Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is