Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri segist varla hafa getað komið upp einu orði vegna stams í æsku og einelti vegna þess gat orðið ljótt. „Ég átti verulega erfitt með að tjá mig“, segir hann. Reynslan af eineltinu hafi hins vegar hert sig og gert sig sjálfstæðan en ekki að viljalitlu hópdýri. Í Bandaríkjunum á námsárunum í háskóla, Indiana University, bauð hann sig fram sem tilraunadýr hjá einum helsta prófessor heims í talmeinafræði en hjá sama skóla er einn besti talmeinaskóli Bandaríkjanna. Nemendur prófessorsins fengu Ásgeir í talkennslu og þannig var það í allan þann tíma sem hann var úti í námi eða í fimm ár. Þá hafði hann lært tækni til að eiga við stamið sem hann býr að í dag og til frambúðar .
Ásgeir hlífir sér hvergi í einstaklega persónulegu viðtali í Mannamáli í kvöld; fornaldarleg æskan, stamið og eineltið, togaralífið, pabbinn í pólitík
og átakanlegur systurmissirinn sem varð til þess að hann breytti um kúrs, hætti í bankanum og fór í fræðasamfélagið.
Mannamál á dagskrá á Hringbraut klukkan 20:00 í kvöld, fimmtudag.