Stal hand­spritti úr Bónus og Hag­kaup – 30 daga fangelsi

Héraðs­dómur Reykja­ness dæmdi í vikunni rúm­lega fer­tugan karl­mann í 30 daga skil­orðs­bundið fangelsi fyrir að stela hand­spritti í þrí­gang úr verslunum Bónus og Hag­kaups. Maðurinn játaði sök fyrir dómi og fangelsis­dómurinn skil­orðs­bundinn til tveggja ára.

Þann 1. apríl síðast­liðinn stal maðurinn hand­spritti að sölu­verð­mæti 749 krónur úr verslun Hag­kaups í Garða­bæ. Þann 25. júlí í sumar stal maðurinn hand­spritti úr verslun Bónus í Garða­bæ, en sölu­verð­mæti þess var 659 krónur. Loks stal maðurinn hand­spritti að sölu­verð­mæti 749 krónur úr verslun Hag­kaups í Kringlunni þann 9. ágúst síðast­liðinn.

Maðurinn sótti ekki þing við þing­festingu málsins og boðaði ekki for­föll og taldi dómurinn þannig sannað að maðurinn hefði framið þau brot sem hann er sakaður um.