Stal buxum og skóm: Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt karl­mann í 60 daga skil­orðs­bundið fangelsi fyrir þjófnað.

Maðurinn var á­kærður fyrir að hafa, þann 30. desember 2019, stolið buxum að verð­mæti 8.900 krónur í verslun Arctic Explor­er í Banka­stræti. Þann 3. júlí á síðasta ári stal maðurinn svo skóm að verð­mæti 4.798 krónur úr Topp­skónum Out­let við Vín­lands­leið.

Maðurinn játaði brot sitt ský­laust fyrir dómi en hann hefur einu sinni áður komist í kast við lögin. Það var í mars 2018 þegar hann og fé­lagi hans stálu fimm vín­flöskum af bar á Hótel Marina við Mýrar­götu í Reykja­vík. Fyrir þann þjófnað hlaut hann 30 daga skil­orðs­bundinn fangelsis­dóm.

Til refsi­þyngingar var litið til þess að um ítrekun við framan­greindan dóm var að ræða. Þótti hæfi­leg refsing 60 dagar í fangelsi, en fullnustu refsingarinnar er frestað haldi maðurinn skil­orð í tvö ár.