Stærsta eftirsjá Eiríks: „Það bara borgaði sig ekki“

Hinn kunni fjölmiðlamaður, Eiríkur Jónsson, prýðir forsíðu DV. Viðtalið hefur vakið nokkra athygli en þar ræðir Eiríkur um umdeildan feril börn, eftirsjá og ástina.

Tobba Marinósdóttir ritstjóri DV spurði Eirík hvort það væri eitthvað sem hann sæi eftir á fjölmiðlaferlinum. Eiríkur svaraði:

„Ég hefði ekki átt að setja Hilmi Snæ á forsíðu Séð og heyrt og skrifa „barnar konu í hesthúsinu“. Ég hefði ekki átt að gera það. Það bara borgaði sig ekki.“

Bætti Eiríkur við að Hilmir Snær væri kunningi hans og hann hefði átt að láta það vera að skrifa um Hilmi með þessum hætti. Þá réttlætti Eiríkur umfjöllunina á sínum tíma á þeim forsendum að Hilmir var helsti kvennaljómi landsins í um áratug. Þá sagði Eiríkur einnig:

„En við erum búnir að gera þetta upp og ég bað hann afsökunar. Þetta var kannski bara gott fyrir hann. Hann er ennþá með konunni sinni. Kannski hristi þetta þau saman.“