Þrír karlmenn voru staðnir að því að stela eggjum undan æðarkollum í varplandinu Stafnesi við Sandgerði fyrr í vikunni.
Í skeyti sem lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér í morgun kemur fram að sá sem stóð þá að verki hafi séð þeir ganga um æðavarpið með plastpoka.
„Hann ræddi við þá og sögðust þeir vera að taka myndir og fleira í þeim dúr en harðneituðu að hafa verið að tína egg. Engu að síður voru þrír plastpokar með samtals 135 eggjum, sem enn voru volg, skammt frá bifreið þeirra,“ segir í skeyti lögreglu.
Lögreglan á Suðurnesjum færði mennina á lögreglustöð þar sem þeir höfðu gerst sekir um brot á reglugerð um friðun tiltekinna villtra fugla og friðlýsingu æðavarps.