Guðmundur Franklín Jónsson, athafnamaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, staðfestir í samtali við fréttavef Vísis að hann ætli að bjóða sig fram til Alþingis á næsta ári. Það mun Guðmundur gera undir merkjum Frjálslynda lýðræðisflokksins.
Guðmundur Franklín hafði verið orðaður við framboð í nokkurn tíma og lagðist hann undir feld í sumar og í haust. Nú hefur hann hins vegar staðfest að hann muni fara í framboð.
Guðmundur segir við Vísi að ekki sé búið að stofna flokkinn formlega. Það verði gert á stofnfundi sem að líkindum verður haldinn á næsta ári, janúar eða febrúar. Á þeim fundi hyggst Guðmundur bjóða sig fram í embætti formanns flokksins.