Staðfest: Daði keppir fyrir hönd Ís­lands í Euro­vision á næsta ári

Engin söngva­keppni verður haldin í Sjón­varpinu vegna Euro­vision-söngva­keppninnar sem fyrir­huguð er næsta vor. Þess í stað mun Daði Freyr og gagna­magnið taka þátt fyrir hönd Ís­lands, en eins og kunnugt er bar Daði sigur úr bítum í undan­keppninni í fyrra en keppninni var síðar af­lýst vegna CO­VID-19.

Frá þessu er greint á vef RÚV.

Haft er eftir Skarp­héðni Guð­munds­syni dag­skrár­stjóra að hann sé á­nægður með að Daði hafi sam­þykkt boðið.

„Daði sigraði Söngva­keppnina 2020 með yfir­burðum og við­tökurnar við ís­lenska fram­laginu hafa aldrei verið svona góðar. Við erum því afar á­nægð og stolt af því að geta sent þennan frá­bæra tón­listar­mann og hans fólk út eins og til stóð að gera síðast.“