Staðan í stjórnarmyndunarviðræðunum er sögð viðkvæm þessa stundina, en eins og kunnugt er ræða Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og VG nú um áframhaldandi stjórnarsamstarf.
Lítið hefur heyrst af gangi viðræðna undanfarna daga en í Fréttablaðinu í dag er ljósi varpað á gang viðræðnanna. Þeir þingmenn sem blaðið ræddi við vildu ekki koma fram undir nafni en sögðust þó bjartsýnir á að viðræðurnar myndu skila árangri og samstarfið haldi áfram.
Nokkur ágreiningsmál eru þó sögð gera það að verkum að staðan í viðræðunum er viðkvæm. Ber þar helst að nefna orkumál og skattamál – og þá sérstaklega skattamálin.
Rifjað er upp að Sjálfstæðismenn hafi boðað skattalækkun fyrir kosningar en vegna viðkvæmrar stöðu ríkisfjármála telja sumir réttast að hækka skatta frekar en að lækka þá. Þó er það sagt liggja fyrir að Katrín Jakobsdóttir verði áfram forsætisráðherra fari svo að flokkarnir haldi samstarfi sínu áfram.
„Þau væru hætt að tala saman ef þetta væri búið,“ hefur Fréttablaðið eftir einum þingmanni meirihlutaflokkanna sem vildi ekki koma fram undir nafni. Annar sagði það sterka vísbendingu um að viðræðurnar myndu skila árangri að flokkarnir séu enn að funda.