Staða og framtíð þjóðarbúsins hefur aldrei verið betri. Líta ber á fámenni landsmanna sem kost við búsetu hér. Hagsmunir atvinnulífs, hins opinbera og almennings eru hinir sömu.
Þetta sagði Hreggviður Jónsson, formaður Viðskiptaráðs, í ræðu sinni rétt í þessu á Viðskiptaþingi 2016 sem fer fram í dag á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu.
Aðalræðumenn þingsins eru Ajay Royan, framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðsins Mithril Capital Management, og Amy Cosper, ritstjóri Entrepreneur Magazine.
Meðal annarra ræðumanna á þinginu eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður Haga og prófessor við London Business School.