Spyr hvort Katrín styðji Rússa eða alþjóðalög

„Það er kominn tími til að Ísland taki kjarnorkuógnina alvarlega, axli sína ábyrgð og skrifi undir samning SÞ um bann við kjarnorkuvopnum.“

Þetta segir Beatrice Fihn, framkvæmdastjóri Alþjóðlegs átaks um afnám kjarnorkuvopna. Hún segir Ísland lengi hafa stutt hugsjónina um heim án kjarnorkuvopna en að óvirkur stuðningur sé ekki lengur nóg. Nú sé þörf á að grípa til aðgerða.

Þetta segir Beatrice í aðsendri grein á Vísi. Hún beinir spjótum sínum að Katrínu Jakobsdóttur.

„Í september 2017, áður en Katrín Jakobsdóttir varð forsætisráðherra, strengdi hún þess heit að vinna að aðild Íslands að samningi SÞ um bann við kjarnorkuvopnum auk fullgildingar hans. Nú er hún forsætisráðherra og það er tími til að velja: Styður hún Rússland og kjarnorkuvopnastefnu þess eða samning SÞ um bann við kjarnorkuvopnum og þar með afstýringu náttúruhamfara á heimsmælikvarða?“

Þar til að því kemur verður Ísland að fordæma hvers kyns ógnir sem tengjast notkun kjarnorkuvopna, láta af opinberri andstöðu sinni við samning SÞ um bann við kjarnorkuvopnum (líkt og Ástralía hefur gert nýverið), og taka þátt í eftirlitsfundum samningsins sem áheyrnarríki.“