Spyr hversu mörg ljós borgarstjóri hyggist slökkva

Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður samtaka leigjenda á Íslandi skýtur föstum skotum að Degi B. Eggertssyni borgarstjóra fyrir kynningu hans á fundi um húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík.

„Af kynningu hans mátti ráða að húsnæðismál í Reykjavík væru í miklum blóma, svo miklum að sjaldan hefði annars eins sést,“ segir Guðmundur.

Hann segir tungutak borgarstjórans jafnvel hafa getað höfðað til þeirra sem þrá einmitt meiri lífsgæði í borginni og betri kjör.

„Hann tók sér í munn mörg aðlaðandi hugtök líkt og “hagkvæmt”, “óhagnaðardrifið” og “félagslegt” húsnæði, sem hafa reyndar raungerst sem slík öfugmæli innan borgarmarkanna að annað önnur eins misnotkun á hugtökum hefur ekki sést í íslensku máli,“ skrifar Guðmundur í aðsendi grein á Vísi.

Þá rekur Guðmundur að næstur á mælendaskrá hafi verið fyrrverandi borgarstjóri Helsinki, Jan Vapaavuoari. Guðmundur segir að erindi hans á fundinum hafi verið „að ræða mikilvægi þess að borgaryfirvöld settu sér heildstæða húsnæðisstefnu, tryggðu arðsemi og mikilvægi “public-private partnership” í uppbyggingu innviða, eða einkavæðingu eins og það heitir á íslensku.“

Guðmundur segir að samkvæmt niðurstöðum í nýlegri skýrslu OECD um húsnæðiskostnað komi Finnland verst út af öllum aðildarríkjum. 31 prósent af öllum heimilum á leigumarkaði í Finnlandi bera íþyngjandi húsnæðiskostnað samkvæmt skýrslunni og um 14 prósent fasteignaeigenda, en Ísland er í fimmta sæti þar segir Guðmundur.

Þá bendir Guðmundur á að Vapaavuori þessi starfi fyrir NREP sjóðinn, stærsta fasteignasjóð Norðurlanda.

„Árangur sá sem í hans tíð sem gerði leigjendur að féþúfu fjárfesta og skapaði þeim versnandi lífskjör í Finnlandi virðist hafa áunnið honum svo mikla aðdáun frá yfirstjórn NREP að þeir gerðu hann að aðalráðgjafa sínum. Sérsvið Vapaavuori hjá sjóðnum eru einmitt fjárfestingar í húsnæði, hjúkrunarheimilum og öðrum innviðum.“

Guðmundur segir þá ákvörðun að hafa boðið honum í ráðhúsið endurspegla annaðhvort ævintýralegt dómgreindarleysi eða vera mjög svo afhjúpandi um fyrirætlanir borgarstjórans og fylgilag hans.

„Þrátt fyrir að stjarna Vapaavuori kunni að vera einhverskonar leiðarljós fyrir reykvísk borgaryfirvöld í húsnæðismálum þá er hitt staðreynd að það hafa slokknað ljósin á mörgum heimilum í Finnlandi í hans tíð. Kannski að borgarstjórinn í Reykjavík hafi fundið sér fyrirmynd í Vapaavuori og vilji ólmur skríða þétt upp að honum í línuritum OECD og slökkva ljósin á fleiri reykvískum heimilum. Miðað við framgöngu hans og þjónustulund við fasteignafélögin á höfuðborgarsvæðinu þá er ekki ólíklegt að hann að hafi metnað til þess.“