Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, veltir vöngum yfir því, á samfélagsmiðlinum Twitter, hversu margar stjórnmálakonur væru tilbúnar til að setja símanúmerið sitt fram á samfélagsmiðlum.
„Ekki ég amk,“ svarar Katrín sinni eigin vangaveltu. Tilefnið er Twitter færsla Jóhanns Páls Jóhannssonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, þar sem hann segist reiðubúinn til að svara spurningum kjósenda sem líklegir eru til að kjósa flokkinn símleiðis.
Sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn Baldursson hælir Jóhanni Páli í hástert fyrir uppátækið. „Verð að segja að mér finnst þetta til fyrirmyndar. Stjórnmálafólk á að vera aðgengilegt og mér finnst þau fjölmörgu sem eru hér á twitter og taka þátt í umræðum eiga mikið hrós skilið. (Í þessari athugasemd minni felst að sjálfsögðu enginn stuðningur við JPJ per se).“
Þá svarar Katrín Gísla: „Hvað ætli margar konur í stjórnmálum væru til í að setja símanúmerið sitt fram með þessum hætti? Ekki ég amk.“
Gísli svarar: „Mjög góður en sorglegur punktur. En þú ert til fyrirmyndar hér á þessum vettvangi finnst mér. Svarar alltaf, lætur athuga mál og svo framvegis. Ég myndi sjálfur nota opinberan vettvang eins og þennan frekar en að hringja - en kannski símtöl henti öðrum betur.“
Þá segir Katrín: „Takk! Mér finnst það sjálfsagt og gaman, en það kostar líka að fólki finnst í lagi að segja ógeðslega hluti við mig hér eða í DMs eða jafnvel senda mér bréf heim.“