Spyr hvernig í and­skotanum Sjallar séu ekki brjálaðir

Hag­fræðingurinn Nanna Her­manns­dóttir spyr hvers vegna Sjálf­stæðis­menn séu ekki brjálaðir yfir því að for­ysta flokksins hafi ekki endur­nýjað um­boð sitt síðan 2018, þrátt fyrir að kosningar eigi að fara fram á tveggja ára fresti.

„For­ysta Sjálf­stæðis­flokksins hefur ekki endur­nýjað um­boð sitt síðan 2018, þrátt fyrir að kosningar eigi að fara fram á 2 ára fresti. Hvernig í and­skotanum eru sjallar ekki brjálaðir og af­hverju er enginn fjöl­miðill að fjalla um hvað þetta sé galið?“ spyr Nanna í röð tísta á sam­fé­lags­miðlinum Twitter.

„Getiði í­myndað ykkur ef þetta væri land utan Evrópu? Flokks­fólk myndi nú eitt­hvað láta heyra í sér um spillingu, skort á lýð­ræði og ein­ræðis­til­burði,“ segir hag­fræðingurinn.

„Sé fyrir mér fyrir­sagnir fjöl­miðla: “For­maður flokksins í lang­tí­burtistan fram­lengir stjórnar­tíð sína um tvö ár, felur sig á bak­við fjölda­tak­markanir vegna Co­vid.“

Aðrir flokkar hafi haldið lands­fundi í Co­vid

Hún bendir á að flokkar með miklu minna fjár­magn en Sjálf­stæðis­flokkurinn hafi getað haldið lands­fundi í heims­far­aldrinum.

„Flokkar með miklu minna fjár­magn á bak­við sig en Sjálf­stæðis­flokkurinn gátu haldið lands­fundi í Co­vid ~á inter­netinu~. Það er kannski ekki i­deal, en væntan­lega betra en ekkert? Alla­vega kjósa for­ystuna?“