Spyr afhverju hún má ekki fara heim til sín þegar henni hentar: „Ég fór að gráta í símann við Hreyfil áðan“

„Ég fór að gráta í símann við Hreyfil áðan, ég er ekki að grínast. Greyið konan gat ekkert fyrir mig gert,“

Þetta skrifaði Tinna Þor­valds Önnu­dóttir, íbúi í vist­þorpinu í Gufu­nesi, í færslu á Facebook sem birtist í dag um úr­ræða­leysi í Reykja­víkur­borgar í sam­göngu­málum í hverfinu. Hún ræddi síðan við Fréttablaðið um málið.

Sam­­göngum í og úr vistþorpinu í Gufunesi er mjög á­bóta­­vant en eina göngu­­leiðin þaðan í strætó er kíló­­metra langur grýttur og ó­­­upp­­­lýstur veg­­slóði sem hefur gert íbúum mjög erfitt fyrir. Til þess að takast á við vandamálið ákvað Reykja­víkur­­borg að bjóða í­búum hverfisins upp á strætó­­leið niður í Spöng í formi leigu­bíla. Þá þjónustu þarf að panta þarf þjónustuna sér­­stak­­lega og er hún að­eins í boði á á­­kveðnum tíma og með löngum fyrir­­vara.

„Ég hafði pantaði síðasta bíl dagsins sem í boði var í tengslum við pöntunar­þjónustu strætó úr Spöng og hingað niður eftir en þá bregður svo við - eins og gerist svo oft - að strætó bara kemur ekki. Enginn veit af hverju og það er ekki hægt að kvarta því öllum er drullu­sama, nema mér sem þarf að standa úti í rigningunni í hálf­tíma að bíða eftir næsta.“ skrifar Tinna, og spyr:

„Af hverju má ég ekki bara koma heim til mín þegar mérhentar? Af hverju má ég bara fara að heiman og heim á tveggja tíma fresti?“

Nánar er hægt að lesa um málið á Fréttablaðið.is