Sóley Kaldal, móðir í Laugarnesinu, fjallar um ástandið í hverfinu í pistli sem birtist á Vísi í dag.
„Árið 2013 var Laugarnesskóli kominn í hámarksafkastagetu, hvort sem litið var til fjölda kennslustofa, mötuneytis, íþróttahúss eða aðstöðu starfsmanna. Skólinn sendi frá sér neyðarkall. Þéttingarstefna borgaryfirvalda í Laugarnesinu og algjörlega fyrirsjáanleg aukning barna í hverfinu (börn birtast jú ekki umheiminum í einu vetfangi við 6 ára aldurinn) var skýr ábending um nauðsyn aðgerða til að styrkja innviði skólastarfsins, en núna 9 árum seinna hafa borgaryfirvöld ekkert aðhafst. Börnunum hefur hins vegar haldið áfram að fjölga jafnt og þétt og fyrirséð er að sú þróun haldi áfram.“ segir hún og lýsir ástandinu í Laugarnesskóla á þennan hátt:
„Matsalurinn er eins og Látrabjarg og það er aðeins fyrir sérstaka hæfileika kokksins að reiddur er fram hádegismatur fyrir 568 börn úr eldhúsi sem er á pari við meðalheimiliseldhús. Verk- og listgreinakennsla lifir á hugmyndaauðgi og fjölhæfni kennara (jóga er listgrein er það ekki?) því húsnæði til hefðbundinnar verk- og listgreinakennslu annar engan veginn fjöldanum. Elsti bekkur skólans, 6. bekkur, getur ekki lengur verið í bekkjarkerfi og þau geta ekki einu sinni verið innan skólalóðarinnar. Þau læra nú í breytilegum námshópum í stúkunni á Laugardalsvelli. Það er óneitanlega kaldhæðnislegt að börnin sem sitja og læra stærðfræði í íþróttamannvirki fá ekki að stunda íþróttir í íþróttamannvirki.“
Sóley fullyrðir að Laugarnesið sé sprungið, og bendir á stöðuna í grunnskólunum, leiksskólunum og frístundarheimilunum máli sínu til stuðnings. „Þetta er allt saman löngu sprungið og borgaryfirvöld vita það.“ segir hún.
Þá minnist Sóley á spuringu sem barnið hennar varpaði fram, og finnst henni eins og þessi einfalda spurning hefði getað sparað borgaryfirvöldum gríðarlega fjármuni.
„„Af hverju byggja þau ekki bara við skólann?“ spurði barnið og hefði getað sparað borgaryfirvöldum stórfé síðasta áratuginn, því augljósasti kosturinn er ennþá sá lang vænlegasti: Stækkið skólahúsnæðið! Það er tillaga nr. 1. Sú tillaga sem hagaðilar styðja eindregið.“
Sóley endar síðan pistill sinn á þessum orðum:
„Laugarnesskóli er sögufrægur skóli, einn sá elsti í Reykjavík og bæði skólinn og sú menning sem þar hefur skapast er okkur íbúunum afar kær. Skólinn og allir aðstandendur hans hafa unnið vinnuna sína. Við biðjum ykkur um að vinna ykkar.“