Sprengjuhótun barst á netfang Menntaskólans við Hamrahlíð í nótt og því fellur skólahald þar niður framan af degi.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að um leið og tilkynnt var um málið hafi lögregla brugðist þegar við og gripið var til viðeigandi ráðstafana, sem miðuðu að því að leita af sér allan grun.
Aðgerðum á vettvangi er lokið og hafa skólastjórnendur verið upplýstir um það, en þeir taka ákvörðun um skólahald í dag.
Í tilkynningunni kemur fram að lögreglan telji sig vita hver stendur að baki hótuninni, en sá er staddur erlendis og hefur áður haft í hótunum með þessum hætti.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.