Séraðgerða og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út síðdegis í dag eftir að togari fékk tundurskeyti í veiðarfæri skipsins. Núna á níunda tímanum verður það sprengt af sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu almannavarna.
„Talið er að um 300 kíló af sprengiefni séu í duflinu og því líklegt að íbúar í Sandgerði finni fyrir sprengingunni.“ Afar sjaldgæft sé að svo öflug tundurskeyti komi um borð í íslensk fiskiskip. „Landhelgisgæslan hefur kallað út viðvörun á rás 16 þar sem bátar eru beðnir um að halda 2 sjómílna fjarlægð og halda sig frá innsiglingunni í Sandgerðishöfn,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.
Eftir að togarinn tilkynnti um duflið óskaði stjórnstöð Landhelgisgæslunnar eftir að skipið færi þegar í stað til hafnar í Sandgerði og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru sendir á staðinn.
Þegar togarinn var kominn til hafnar var skipið rýmt og sprengjusérfræðingarnir undirbjuggu flutning tundurskeytisins frá borði með sérstökum flothólkum og að lokum var duflið híft í sjóinn og dregið með slöngubát séraðgerðasveitar hálfan annan kílómetra frá höfninni. Gert er ráð fyrir að duflið verði sprengt núna á níunda tímanum.