Sprenging við Olís í Álfheimum: Hvellurinn heyrðist í nokkra kílómetra fjarlægð

Hávær sprenging varð á bensínstöð Olís í Álfheimum á þriðja tímanum í dag. Fréttablaðið greinir frá málinu.

Talið er að sprenging hafi orðið í metangaskút á bensínstöð Olís í Álfheimum.

Íbúar í Langholtshverfi ræða hvellinn sín á milli í íbúahópi og heyrðist hann í nokkurra kílómetra fjarlægð frá upptökunum.