Sprenghlægileg saga frá því þegar Hannes og Davíð hittu Bandaríkjaforseta: „Ekki eru nú miklir söngmenn hér!“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, háskólaprófessor, segir skemmtilega sögu af sér og Davíð Oddssyni á Facebook, þegar þeir félagarnir voru í heimsókn í Hvíta húsinu.

„Davíð Oddsson kom einu sinni í námskeið til mín í Háskólanum, þegar ég kenndi Bandarísk stjórnmál, og sagði frá kynnum sínum af fjórum forsetum, Reagan, Bush-feðgum og Clinton, en þremur hinum síðast nefndu kynntist hann ágætlega.“ byrjar Hannes.

Hann greinir síðan frá því þegar þeir sungu afmælissönginn fyrir George W. Bush.

„Ég fór með Davíð í ávölustofu í Hvíta húsinu 6. júlí 2004, og við sungum afmælissönginn fyrir George W. Bush, sem átti einmitt afmæli þennan dag. Colin Powell stóð við hliðina á mér, sneri sér að mér hlæjandi og sagði: „Ekki eru nú miklir söngmenn hér!““