Spratt á fætur og mætti allt of snemma í flug eftir vitlaust SMS frá Icelandair

Kona á Akureyri segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa fengið SMS frá Icelandair snemma morguns fyrir nokkrum dögum þar sem henni var tilkynnt að flugi hennar til Reykjavíkur hefði verið flýtt.

Fréttablaðið greinir frá þessu og segir að konan hafi sprottið fram úr og gert miklar ráðstafanir til að ná fluginu.

Þegar konan kom út á Akureyrarflugvöll var ekki lífsmark að sjá í innanlandsfluginu og kom þá á daginn að konan hafði fengið skilaboð send sem voru ætluð farþegum í Reykjavík á leið til Akureyrar.

Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að margar óánægjusögur úr innanlandsflugi hafi ratað inn á Facebook-síðuna Dýrt innanlandsflug – þín upplifun. Þar segir meðal annars að auk sögulegrar dýrtíðar fargjalda hafi mörg flug verið felld niður síðustu vikur og tíðar breytingar, flugi ýmist flýtt eða seinkað. Sem dæmi voru 14. júní síðastliðinn gerðar þrjár breytingar á flugi milli Egilsstaða og Reykjavíkur.

Guðni Sigurðsson, starfsmaður á samskiptasviði Icelandair, segir við Fréttablaðið að þetta tiltekna atvik verði rannsakað og bætir við að hann telji að svona mistök séu sjaldgæf. Hann staðfestir þó að óþægindi tengd breytingum á flugi hafi verið óvenju mikil síðustu vikur en sjaldgæft sé að flug séu felld niður.

Nánar á vef Fréttablaðsins.