Spiklögin á kerfinu taki ekki á sig neinar skerðingar

„Er ég að skilja þetta rétt; telja hinir opinberu starfsmenn sem óvart eru orðnir með þeim launahærri hér á landi á; þingmenn, ráðherrar, embættismenn, deildarstjórar, skrifstofustjórar, upplýsingafulltrúar. ríkisforstjórar... sig vera algerlega stikkfrí meðan vinnumarkaðurinn eru rjúkandi rúst?,“ spyr Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, í færslu á Facebook. Vísar hann þar til samdráttarins sem nú gætir vegna COVID-19 faraldursins. Mikill samdráttur er í smásölu, að matvöruverslunum undanskildum. Þá er einnig orðinn mikill samdráttur í ferðaþjónustu.

„Hyggjast þau standa á hliðarlínunni og leggja til huggunarorð hér og hvatningu þar: Við getum þetta ef við stöndum saman! En telja enga ástæðu til að taka á sig nokkrar skerðingar og deila kjörum með almenningi? Á hvaða grunni telur þetta blessaða fólk sig standa?“

Nokkrar umræður hafa skapast um þetta á vegg Jakobs. Þar útskýrir hann að hann eigi ekki við um hjúkrunarfræðinga, lögregluþjóna eða kennara. „Ég er að tala um spiklögin, skvapið sem hefur myndast á kerfisbúknum. Af hverju er aðstoðarmaður ráðherra með 1,5 milljón í laun? Eða hvað það nú er og svo dæmi sé nefnt. Fólk er ekki að láta sig það miklu skipta þegar vel gengur, en þegar kreppir að, og markaðurinn þarf að taka á sig stórfelldar skerðingar þá verður þetta heldur nöturlegt,“ segir Jakob. „Þetta eiga að heita þjónar almennings en ekki yfirboðarar og/eða sjálftökuskríll. Hið opinbera er að sliga þjóðina. Það verður að fara í niðurskurð á þessu.“

Hann á ekki von á því að Sjálfstæðisflokkurinn, sem boðaði eitt sitt „báknið burt“, geri neitt. „Þetta er flokkur pilsfaldakapítalisma og ólígarkisma. Og taktu eftir einu, ég á fjölda þingmanna á vinalista, það hvarflar ekki að nokkrum manni að setja eins og eitt lítið læk við þessari sjálfsögðu athugasemd eða ábendingu; síst úr ranni xD. Þó ætti þetta nú að vera eitthvað sem menn tala fjálglega um á Landsfundum.“

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, bætti við að stjórnmálamenn sem deila ekki örlögum venjulegs folks sé illa treystandi fyrir örlögum veljulegs fólks.

„Ég barðist frá fyrsta degi gegn Kjararáðshækkuninni og notaði svo það sem kom í minna vasa, eða rúmar 1,5 milljónir króna til að kæra Kjararáð með VR. (Afsalaði mér svo sporslum til að ná yfir 2 milljónir í heild). Við Píratar lögðum svo fram 4 tillögur yfir meira ein eitt ár um að leiðrétta þessa hækkun, sem allar voriu felldar í þingsal,“ segir Jón Þór.
„Þau munu ekki deila kjörum með almenningi. Þau hafa haft ótal tækifæri en vilja það ekki. Til að gæta sanngirni þá lagði Kata þó Kjararráð niður og festi laun ráðamanna við þau hækki ekki neða laun almennings geri það.“

Björn Leví Gunnarsson, flokksbróðir Jóns Þórs, spyr svo hverjir séu spenntir fyrir því að sjá hvernig fyrsti útreikningur launa verður samvkæmt þeim lögum sem komu í staðinn fyrir kjararáð?:
Þingfararkaup skv. 1. gr. nemur 1.101.194 kr. á mánuði. Þingfararkaup skal taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár.
„Þetta gerist í fyrsta sinn í ár ...“