Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi, hefur birt áhugaverða spá á Facebook-síðu sinni um framgang eldgossins í Meradölum. Stefán þykir með hugmyndaríkari mönnum og er spá hans ef til vill til marks um það.
„Spádómur: hraun rennur yfir Suðurstrandarveg og við fáum geggjað sjónarspil þegar hraun rennur út í sjó, sem allir og amma þeirra munu vilja horfa á. Þetta verður auðvitað þungbært fyrir íbúa Grindavíkur og Þorlákshafnar, sem munu missa mikilvæga samgönguæð og fyrstu fréttir af þessum hamförum verða allar á háa c-inu,“ segir Stefán sem býst við að afleiðingarnar til lengri tíma verði kannski ekki svo neikvæðar.
„Eftir eitt og hálft ár, þegar gosinu verður lokið, verður Suðurstrandarvegurinn einfaldlega plægður upp aftur með hraunvegginn á báðar hendur og til verður ein af mestu túristagildrum Íslands sem allir gestir vilja heimsækja,“ segir hann áður en hann bætir við einum aukaspádómi.
„Það verður styttra í að Suðurstrandavegur verði með þessum hætti lagður í stokk en Miklabrautin.“