Spádómur um hvað taki við hjá Steingrími J. Sigfússyni þegar hann hættir í stjórnmálum hefur birst á vef Eiríks Jónssonar, fjölmiðlamanns. Þar segir að raddir heyrist innan úr stjórnkerfinu að búið sé að ákveða að hann fái stöðu hjá hinu opinbera þegar hann hættir eftir kosningar í haust. Steingrímur hefur setið á Alþingi frá árinu 1983, eða í 38 ár, bæði sem þingmaður og ráðherra, formaður Vinstri grænna, og nú sem forseti Alþingis.
Í spádómnum segir að Steingrímur verði gerður að forstjóra væntanlegs hálendisþjóðgarðs.
„Með forstjóratitli þjóðgarðsins mundi Steingrímur líklega tryggja sér hæstu eftirlaun í heimi miðað við höfðatölu þjóðarinnar sem þyrfti að standa undir greiðslunum,“ segir einnig í spádómnum, en Steingrímur er 65 ára.