Pizzastaðurinn Spaðinn hefur hækkað verð á brauðstöngum og sósu. Fyrir hækkunina kostaði einn skammtur af brauðstöngum 350 krónur en kostar nú 500 krónur. Þá kostaði sósan áður 150 krónur en kostar nú 175 krónur.
Hefur settið, það er brauðstangir og sósa, því hækkað úr 500 krónum í 675 krónur. Fyrst var vakin athygli á þessu í Facebook-hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi.
Bent er á það að Spaðinn sé samt sem áður töluvert ódýrari en til dæmis Dominos, en þar kostar stór skammtur af brauðstöngum 790 krónur og brauðstangasósa 245 krónur, eða samtals 1.035 krónur. Á Pizzunni kostar skammtur af brauðstöngum einnig 790 krónur og sósan 249 krónur, samtals 1.039 krónur.
Í athugasemdum undir færslunni segja margir að verðið sé þrátt fyrir allt lágt. „Finnst ekkert að þessu. Reyndar var þetta mjög ódýrt! Fékk okkur pizza á Spaðanum og meðlæti um helgina - kostaði undir 3.500,“ segir í einni athugasemdinni.
Ekki náðist í Þórarin Ævarsson, eiganda og stofnanda Spaðans, til að spyrja hann út í þessa verðhækkun.