Sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann segir að hann hafi verið hvattur til að bjóða sig fram fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Þetta kom fram í nýjasta þættinum af hlaðvarpsþættinum Hæ hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars þar sem Logi var gestur.
„Það var svolítið sótt á mig að fara í borgarstjórann núna fyrir síðustu kosningar. Alveg nokkrir. Þú átt að gera þetta. Þú yrðir frábær borgarstjóri,“ segir Logi.
Hann segist ekki neikvæður fyrir hugmyndinni. „Ég hugsaði um það í svona hálfan dag. Ég væri alveg til í að vera borgarstjóri,“ sagði Logi.
Hann segir að umsóknarferli starfsins hafi þó setið í sér. „En ég væri ekki til í að fara í kosningabaráttu og svo tapa. Þá endarðu að sitja í eftirlitsnefnd með einhverjum. En ég væri alveg til í að vera kominn með þetta.“
Aðspurður út í eigin skoðanir sínar sagði Logi meðal annars að hann væri fylgjandi nýrri borgarlínu. Sumt myndi hann samt gera öruvísi.
„Ég vil hafa meira frelsi. Mér finnst fáránlegt að það sé ekki sundlaug opin allan sólahringinn – alltaf. Myndum við tapa svo miklu á því? Af hverju erum við þar?“