Sósíal­istar segja ríkis­stjórnina hafa gert sótt­varnir að há­pólitísku máli

Sósíal­ista­flokkurinn segir ríkis­stjórnina hafa gert sótt­varnir á Ís­landi að há­pólitísku máli, í nýrri til­kynningu þar sem segir að Sósíal­istar vilji varið land.

Þar segir meðal annars að reynsla annarra þjóða sýni að harðar að­gerðir á landa­mærum geti tryggt veiru­frítt sam­fé­lag og þar með litlar tak­markanir á dag­legu lífi. Þar sem best hafi tekist hafi skaði veirunnar ekki einungis minnkað, heldur hefur líf al­mennings orðið á­nægju­legra og sam­dráttur í efna­hags­lífi minni.

„Ríkis­stjórninni tókst ekki að verða við ósk sótt­varna­yfir­valda um tæki til herða á sótt­kví á landa­mærum. Málið var eyði­lagt í með­förum Al­þingis, sem setti lög sem sér­stak­lega bannaði að fólk væri skikkað í sótt­kvíar­hús. Heil­brigðis­ráðu­neytið kórónaði svo skömmina með því að setja reglu­gerð þvert á lögin, reglu­gerð sem skiljan­lega var dæmd ó­lög­leg í héraðs­dómi.

Í dag freistar ríkis­stjórnin þess að koma í gegnum Al­þingi nýju frum­varpi sem gengur mun skemur en fyrra frum­varp. Það hefur verið enn þynnt út í mála­miðlun við eig­endur stærstu ferða­þjónustu­fyrir­tækjanna annars vegar og hins vegar ný­frjáls­hyggju­fólkið í Sjálf­stæðis­flokknum, sem setur rétt ein­stak­linga til að vera í heima­sótt­kví ofar sam­fé­lags­legum á­vinning af veiru­fríu sam­fé­lagi.“

Þá segir í niður­lagi til­kynningarinnar að Sósíal­istar hafni al­farið full­yrðingum ný­frjáls­hyggju­fólksins um að sótt­kví við landa­mærin sé mann­réttinda­brot.

Til­kynning flokksins í heild sinni:

Sósíal­istar vilja varið land

Ríkis­stjórnin hefur nú gert sótt­varnir á Ís­landi að há­pólitísku máli eftir að hafa að mestu gengið í takt við sótt­varna­yfir­völd frá upp­hafi kóróna­far­aldursins. Um þá stefnu hefur að mestu ríkt sátt í sam­fé­laginu, fyrst og fremst vegna þess að sótt­varna­yfir­völd hafa nær ein­göngu lagt það til við stjórn­völd sem meiri­hluti al­mennings hefur verið til­búinn að styðja og beygja sig undir.

Fyrir mánuði fóru sótt­varna­yfir­völd fram á heimildir til að styrkja sótt­kví á landa­mærunum. Þetta var í takt við vilja al­mennings, sem er lang­þreyttur orðinn á miklum hömlum á dag­legt líf. Reynsla annarra þjóða hefur sýnt að harðar að­gerðir á landa­mærum geta tryggt veiru­frítt sam­fé­lag og þar með litlar ef nokkrar tak­markanir á dag­legu lífi.

Þar sem best hefur tekist til hefur skaðinn af veirunni ekki að­eins orðið minni, líf al­mennings á­nægju­legra heldur hefur sam­dráttur í efna­hags­lífinu orðið minni. Sam­komu­bönn og enda­lausar tak­markanir á dag­legu lífi draga afl úr at­vinnu­lífinu, eyða störfum og valda ein­stak­lingum og fyrir­tækjum ó­þarfa efna­hags­legum bú­sifjum.

Ríkis­stjórninni tókst ekki að verða við ósk sótt­varna­yfir­valda um tæki til herða á sótt­kví á landa­mærum. Málið var eyði­lagt í með­förum Al­þingis, sem setti lög sem sér­stak­lega bannaði að fólk væri skikkað í sótt­kvíar­hús. Heil­brigðis­ráðu­neytið kórónaði svo skömmina með því að setja reglu­gerð þvert á lögin, reglu­gerð sem skiljan­lega var dæmd ó­lög­leg í héraðs­dómi.

Í dag freistar ríkis­stjórnin þess að koma í gegnum Al­þingi nýju frum­varpi sem gengur mun skemur en fyrra frum­varp. Það hefur verið enn þynnt út í mála­miðlun við eig­endur stærstu ferða­þjónustu­fyrir­tækjanna annars vegar og hins vegar ný­frjáls­hyggju­fólkið í Sjálf­stæðis­flokknum, sem setur rétt ein­stak­linga til að vera í heima­sótt­kví ofar sam­fé­lags­legum á­vinning af veiru­fríu sam­fé­lagi.

Það liggur ljóst fyrir að hættan á smiti, veikindum og jafn­vel dauða er meiri ef sótt­varnir á landa­mærunum eru veikari. Það liggur líka ljóst fyrir að efna­hags­legur sam­dráttur verður minni ef það tekst að af­létta öllum hömlum innan­lands í skjóli harðra sótt­varna á landa­mærunum.

Það eru því engin efna­hags­leg rök fyrir kröfum eig­enda stærstu ferða­þjónustu­fyrir­tækjanna. Krafa þeirra byggist á að þeir sjálfir kunni að græða ef hingað koma fleiri túr­istar þótt allt sam­fé­lagið muni tapa miklu meiri fjár­munum á sama tíma. Og það eru engin rök fyrir upp­hrópunum ný­frjáls­hyggjuliðsins í Sjálf­stæðis­flokknum um mann­réttindi. Það má lesa í dómum Mann­réttinda­dóm­stóls Evrópu að ríkis­valdinu er heimilt að skerða réttindi ein­stak­linga gagn­vart bráðri vá og miklum hags­munum heildarinnar. Mann­réttindum er ætlað að byggja upp sam­fé­lög, ekki brjóta þau niður.

Í ljósi þessa, og þar sem ríkis­stjórnin hefur á­kveðið að víkja af braut og gera sótt­varnir að pólitísku máli í ís­lensku sam­fé­lagi; lýsir fram­kvæmda­stjórn Sósíal­ista­flokks Ís­lands því yfir að hún styður varið land, að sótt­varnir séu efldar á landa­mærunum í von um að dag­legt líf innan þeirra geti orðið sem eðli­legast. Sósíal­istar hafna al­farið full­yrðingum ný­frjáls­hyggju­fólksins um að sótt­kví við landa­mæri sé mann­réttinda­brot. Og sósíal­istar hafna því al­farið að hags­munir hlut­hafa í allra stærstu ferða­þjónustu­fyrir­tækjunum skuli metnir mikil­vægari en hagur alls al­mennings af eðli­legu lífi.

Sósíal­istar styðja varið land.