Sósíal­istar í hár saman vegna mál­frelsis: „Fólk eins og þú sem eyði­leggja mögu­leika vinstrisins að ná árangri“ – Gunnar Smári semur um frið

Andri Sigurðs­son, for­sprakki Jæja hópsins og með­limur í Sósíal­ista­flokki Ís­lands, stofnaði til vægast sagt eld­fimra um­ræðna inni í hópi Sósíal­ista­flokks Ís­lands á Face­book í gær. Um­ræðu­efnið var mál­frelsi og sagði Andri: „Ef vinstrið er snjallt mun það berjast af krafti fyrir mál­frelsi fyrir alla. Ekki sýst til þess að ná því af hægrinu sem hefur eignað sér mál­frelsis bar­áttuna.“

Með færslunni deilir hann mynd sem Jæja hópurinn birti á síðu sinni í gær. Þar er vitnað í orð banda­ríska fræði­mannsins og heim­spekingsins Noam Chom­sky: „Ef við trúum ekki á mál­frelsi fyrir þá sem við fyrir­lítum þá trúum við ekki á það yfir höfuð.“

Andri segist varðmaður málfrelsis

Upp úr þessu hefjast sjóðandi heitar um­ræður þar sem ýmsir nafn­togaðir ein­staklingar blanda sér í um­ræðuna.

Sæ­borg Ninja Urðar­dóttir, trans­kona og lafði, á fyrsta orðið. Hún skýtur föstum skotum á Andra: „hvað með að hætta vera hörunds­ár libbi? Þú ert að verja hatur­s­orð­ræðu, sem ef þér væri annt um jaðarinn þá vissirðu, að hún eykur og stuðlar að sam­þykkt of­beldis sem er beint gegn okkur. Grow up,“ segir Sæ­borg.

Andri svarar um hæl. Hann segir úti­lokunar­menningu risa­stórt vanda­mál: „Ertu að kalla mig libba? Vá haha. Nei ég er að verja mál­frelsi. Þetta er ná­kvæm­lega það sem Noam Chom­sky benti á […] Þú getur ekki rit­skoðað þig til meira frelsis eða rétt­lætis. Það er ein­mitt fólk eins og þú og fleiri sem eru að eyði­leggja mögu­leika vinstisins að ná árangri með al­ræðis­legum hug­myndum ykkar um rit­skoðun. Þessi úti­lokunar­menning ykkar er risa stór vanda­mál sem þið þurfið að hætta,“ segir Andri.

Sam­skipti Sæ­borgar og Andra fara fram og til baka þar sem Sæ­borg segir Andra meðal annars hata þá sem jaðar­settir eru í sam­fé­laginu og líkir orð­ræðu hans við Repúblikana.

Þá segir Andri aftur á móti að Sæ­borg sé ein­fald­lega „búllý“ eða ein­eltis­segg, sem þurfi að læra að bera virðingu fyrir skoðunum annarra. Þá segir hann jafn­framt að hatur­s­orð­ræða sé of­beldi en „það þýðir ekki að það eigi að rit­skoða hana.“

Foringinn mætir á svæðið

Á annað hundrað svör er að finna undir færslu Andra þar sem flestir sem þar tjá sig lýsa sig and­snúna honum og bein­línis út­húða færslu hans.

Sósíal­ista­foringinn sjálfur Gunnar Smári Egils­son neyðist til að grípa í taumana og gerir til­raunir til að róa mann­skapinn eftir í­trekaðar á­bendingar frá með­limum Sósíal­ista­flokksins um að færsla Andra skjóti skökku við reglur hópsins.

Ýmsir fé­lags­menn benda á að í reglum Face­book-hóps Sósíal­ista­flokksins sé kveðið á um að hatur­s­orð­ræða sé ekki liðin. Færsla Andra snýr hins vegar að því að bera þurfi um­burðar­lyndi gagn­vart hatur­s­orð­ræðu. Allir eigi að búa við mál­frelsi.

Gunnar Smári segir meðal annars: „Krafan um að allt sem sagt er hér sé á á­byrgð Sósíal­ista­flokksins, að því sem ekki er eytt sé sér­stök skoðun flokksins, gengur ekki upp. Slík rit­skoðuð um­ræða þar sem ekkert er sagt, jafn­vel innan um­ræðu um tjáningar­frelsi, sem fólk fellur sig ekki við, er í raun krafa um að loka þessum spjall­hóp. Þetta er torg þar sem alls­kyns af­staða heyrist, ein­mitt vett­vangur fyrir um­ræðu eins og á þessum þræði.“

Þá segir hann í annarri at­huga­semd að „Admin telur ekki á­stæðu til að rit­skoða um­ræðu um tjáningar­frelsi.“ Þess má geta að Gunnar smári er ein­mitt „admin“ eða stjórnandi hóps Sósíal­ista­flokksins á Face­book.

Gunnar Smári segir enn fremur: „Admin metur það svo að þessi um­ræða sé mikil­væg, að fólk geti lesið og tekið þátt í um­ræðu um ein­mitt þessi at­riði. Þarna kemur fram hversu mikil­vægt er að nota hug­tök sem ekki særa eða þröngva röngum skil­greiningum upp á fólk. Og það er al­menn af­staða á þessum þræði, sýnist mér. Það var að­eins einn sem notaði þetta hug­tak, um­ræðan er ekki að auka fylgi við notkun þess heldur þvert á móti.“

Umræðan býður upp á hatursárásir

Upp­ljóstrarinn Bára Hall­dórs­dóttir lætur ekki sitt eftir liggja undir þræði Andra: „Ef maður stendur upp í Strætó og básúnar þar eitt­hvað sem ógnar far­þegunum þá er eðli­legt að honum sé vísað út. Orð hafa af­leiðingar. Mál­frelsi fylgir því að fá mót­svör og ef við­komandi fer yfir vissar línur fylgir því á­lits­hnekkir og mögu­lega ó­greiðari að­gangur að borðinu. "Cancel culture" er bara slag­orð sem búið var til vegna þess að vissum hópum líkar illa að mót­vægis­raddirnar eru að styrkjast og heyrast. Orð geta líka auð­veld­lega verið of­beldi, og sí­endur­tekin orð­ræða veldur skaða,“ segir Bára.

Hún hefur fengið sinn skerf af haturs­fullum um­mælum: „Ég veit ekki hve oft ég hef sleppt því að taka þátt í um­ræðu vegna þess það býður uppá mögu­legar haturs­árásir vegna hinna mörgu jaðar­hópa sem ég til­heyri. Þá þarf ég að ber­skjalda mig fyrir ó­fyrir­sjáan­legum ofsa og mögu­legum einka­hótunum. Og það "Cancelar" mig úr mikil­vægri um­fjöllun vegna þess að ég ligg vel fyrir höggi,“ segir Bára.

Svein­björn Hjör­leifs­son, sonur Ingi­bjargar Sól­rúnar Gísla­dóttur, leggur sömu­leiðis orð í belg undir færslu Andra. Hann vill að skoðana­bræður sínir, sósíal­istar, þurfi að styðja mál­frelsi allra: „Per­sónu­lega finnst mér að sósíal­istar verði að styðja mál­frelsi fyrir alla, jafn­vel þótt það sé sárs­auka­fullt og geti haft nei­kvæðar af­leiðingar. Af­leiðingarnar af því að gera það ekki eru nefni­lega mun verri,“ segir Svein­björn.

Hann segir mál­frelsi helsta bar­áttu­tæki allra þeirra sem standi höllum fæti: „Ég veit ekki af hverju þetta hefur snúist á haus og af hverju svona margir eru sann­færðir um það í dag að mál­frelsi sé hindrun fyrir rétt­látt sam­fé­lag en ekki helsta hjálpar­tækið.“

Ljóst er að með­limir Sósíal­ista­flokksins láta ekki deigan síga þrátt fyrir mis­heppnaða til­raun til þess að komast inn á Al­þingi í kosningunum fyrir mánuði síðan. Tölu­verður hiti er í mann­skapnum og ó­hætt er að segja að í hópnum þrífist margs­konar ó­líkar skoðanir.