Jæja-hópurinn beinir spjótum sínum að Drífu Snædal, forseta ASÍ, og Flosa Eiríkssyni, framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins, og saka þau um að taka frekar afstöðu með meðvirku starfsfólki en ekki Sólveigu Önnu Jónsdóttur í deilunum innan Eflingar.
Jæja er nafnlaus síða sem tekur afstöðu með Sósíalistaflokki Íslands og hafa áhrifamenn þar verið bendlaðir við færslur sem þar hafa birst. Í nýjustu færslu Jæja segir:
„Sólveig Anna hefur sagt opinberlega frá því að karlkyns starfsmaður skrifstofu Eflingar hótaði að koma á heimili hennar og beita hana ofbeldi. Sólveig tilkynnti málið til lögreglu og hefur sagt að vitnisburður liggi fyrir. Starfsfólk og trúnaðarmenn skrifstofu Eflingar kærðu sig kollótta og kusu frekar að hrekja Sólveigu úr starfi með upplognum ásökunum,“ segir í færslunni, þá er spjótum beint að Drífu og Flosa:
„Drífa Snædal forseti ASÍ stendur ekki með lýðræðislega kjörnum leiðtoga stéttarfélags verka- og láglaunafólks, heldur tekur afstöðu með starfsfólkinu og meðvirkni þess með ofbeldishegðun. Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins tekur í sama streng.“
Drífa hefur verið öflugur talsmaður launafólks frá því hún tók við og hefur færslan vakið töluverð viðbrögð.
„Bíddu er Drífa Snædal núna ekki nógu öflug fyrir Jæja?,“ spyr rithöfundurinn Snæbjörn Brynjarsson, hann heldur áfram á Twitter: „Jæja er búið að greina stöðuna og koma auga á aðal anarkó-syndikalistann að baki þessu öllu. Djöfull er þetta þreytt. Skil ekki hvernig Jæja nær einhverjum af sínum yfirlýstu markmiðum með því að grafa undan Drífu, sem stendur sig býsna vel sem leiðtogi verkalýðshreyfingarinnar.“
Halldór Auðar Svansson, fyrrum oddviti Pírata í borgarstjórn, tekur undir og segir:
„„Skrifstofufólkið“ og svo hin hugmyndafræðilega hreinu. Það fer að verða sífellt kostnaðarsamara að viðhalda þessum blessaða hreinleika. Bara full vinna að flokka fólk og búa til nýja stimpla.“
Þorsteinn nokkur segir svo: „Jæja er svona dæmi um hvernig "byltingin" ekki bara borðar börnin sín heldur hámar þau í sig af áfergju, sleikir út um og biður um meira.“