Sósíal­istar fá 120 milljónir frá ríkinu næstu fjögur árin

Gunnar Smári Egils­son og fé­lagar í Sósíal­ista­flokknum munu fá 120 milljónir frá ríkinu næstu fjögur árin. Gunnar Smári upp­lýsti um þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Hann segist því ekki vera svekktur yfir því að hafa ekki komist á þing. „Síðan há­degið daginn eftir fattaði ég að þetta var sigur,“ segir Gunnar Smári. Bar­áttan sé ekki háð inni á þingi.

Mark­miðið sé að endur­reisa verka­lýðs­hreyfinguna. Hann segir Fram­sókn ekki hafa hug­mynd um hvað hún ætli að gera í stóru málunum.

Gunnar Smári segir Sósíal­ista ekki ætla að pakka saman með 4,1 prósent fylgi. Það hefði skilað þeim þing­sætum í öllum ná­granna­ríkjum.

„Nú fáum við hluta af peningunum. 30 milljónir á ári sem við lýstum því yfir hvað við ætlum að gera við. Við ætlum að byggja upp fjöl­miðla, til þess að styrkja rödd hinna fá­tæku og kúguðu,“ segir Gunnar Smári. Um verður að ræða annars­konar fjöl­miðlun.

„Til þess að það verði um­fjöllun og um­ræða um þessi mál­efni, með þessu fólki og á for­sendum þessa fólks.“