Sorgar­stund: „Maðurinn sem lækkaði bensín­verðið er dáinn“

„Mér finnst það nú heil­mikil tra­gedía að hann skuli vera dáinn maðurinn sem breytir verðinu á dælum bensín­stöðvanna,“ segir Guð­mundur Brynjólfs­son ný­bakaður doktor í bók­mennta­fræði, rit­höfundur og kunnur pistla­skrifari í sam­tali við Frétta­blaðið.

Guð­mundur er hér með hnyttnum hætti að vísa til þess að olíu­fé­lögin hér á landi hafa verið eld­snögg að hækka bensín­verð þegar inn­kaupa­verð hækkar. En fyrir nokkrum dögum hríð­féll verðið á heims­markaði. Sú lækkun hefur ekki skilað sér í vasa ís­lenskra neyt­enda.

„Auð­vitað þarf það ekki að koma á ó­vart að svo hafi farið [að bensín­maðurinn hafi dáið] eins og á­standið hefur verið undan­farna mánuði, hann þurfti blessaður maðurinn að rassakastast á milli stöðva, stundum oft á dag,“ segir Guð­mundur um verð­hækkanir undan­farið í kjöl­far inn­rásarinnar í Úkraínu.

„Og undir það síðasta var hann orðinn svo þjakaður af verð­bólgu að hann hélt engu niðri, ekki einu sinni skýringum yfir­manna sinna á því hvers vegna á­lagið væri svona mikið - á honum og elds­neytinu.“