Íþróttafélagið Fjölnir í Grafarvogi hefur ákveðið að aflýsa Októberfest í ár vegna skyndilegra fráfalla tveggja Fjölnismanna og utanaðkomandi aðstæðna.
Frá þessu er greint á heimasíðu Fjölnis.
Til stóð að halda Októberfest félagsins í Fjölnishöllinni þann 17. september næstkomandi. Hefur því aftur á móti verið aflýst þar til 23. september á næsta ári.
„Við hvetjum alla til að standa saman í Fjölnisfjölskyldunni. Þau sem höfðu keypt miða fá endurgreitt. Við hjá Ungmennafélaginu Fjölni sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur til aðstandenda.“