Sorg ríkir í Garðabæ eftir að 11 ára drengur fannst látinn í heimahúsi á þriðjudag. Mannlíf greinir frá þessu sorglega máli en í fréttinni kemur fram að líklegt sé talið að um slys hafi verið að ræða.
Mannlíf hefur eftir Eiríki Birni Björgvinssyni, forstöðumanni fræðslusviðs Garðabæjar, að í öllum tilvikum, þar sem upp koma sorgleg slys eða andlát, fari ákveðið ferli af stað. Það feli meðal annars í sér áfallahjálp og vandaða upplýsingagjöf til nemenda og foreldra skólanna.
Samkvæmt frétt Mannlífs stendur rannsókn lögreglu yfir.