„Hann var svo hlý manneskja. Það eru þau orð sem lýsa honum best,“ hefur litháíski fréttamiðillinn Delfi eftir Arnas Borodinas, fyrrverandi liðsfélaga Džiugas Petrauskas. Petrauskas þessi fannst látinn á Húsavík á dögunum en hann var aðeins 27 ára gamall.
Fréttavefur DV greindi fyrst frá málinu.
Í fréttinni kemur fram að Petrauskas hafi fundist látinn aðfaranótt 9. ágúst síðastliðinn í grennd við Húsavík. Hann flutti til Íslands fyrr á þessu ári eftir að hafa fengið starf í Kísilverksmiðju PCC á Bakka.
Petrauskas var efnilegur knattspyrnumaður og lék hann til dæmis með yngri landsliðum Litháens á sínum tíma. Þá átti hann nokkra leiki að baki með einu sigursælasta liði Litháens, Ekranas, sem hefur orðið meistari sjö sinnum á síðustu 30 árum.
Í frétt DV kemur fram að málið sé í rannsókn en heimildir miðilsins herma að hann hafi svipt sig lífi.
Fjölmiðlar í Litháen hafa fjallað um andlát Petrauskas og í fyrrnefndri frétt Delfi minnast fyrrum félagar hans hjá Ekranas leikmannsins með hlýjum orðum. Þá er greint frá söfnun til handa systur hans á þessum erfiðu tímum.
Kyrrðar- og minningarstund um Petrauskas var haldin í Húsavíkurkirkju þann 9. ágúst síðastliðinn þar sem minningarljós voru meðal annars tendruð.