Sorg á heimili Björg­vins: „Litla hjartað hans bara gafst upp“

Einn ást­sælasti söngvari okkar Ís­lendinga Björg­vin Hall­dórs­son greinir frá því á Face­book að kötturinn hans Markús Árelíus lést í gær.

„Hjarta­knúsarinn okkar hann Markús Árelíus kvaddi þennan heim í gær. Hann hefur gefið okkur ótal hamingju­stundir í níu ár. Litla hjartað hans bara gafst upp. Mikil sorg ríkir í kotinu núna,“ skrifar Björg­vin á Face­book.

Björg­vin er mikill katta vinur en í við­tali við árið 2013 greindi hann frá því í við­tali við Vísi að hann ætti fjóra ketti en á þeim tíma sem við­talið var tekið var Markús Árelíus eins árs.

Björg­vin birtir fal­legar myndir af sér með Markúsinni sem hluti af kveðjunni sem sjá má í færslunni hér að neðan.