„Það er mjög gott að finna stuðninginn, það er eiginlega ólýsanlegt, að finna að okkur er ekki sama hvort um annað,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur og bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði, í samtali við fréttavef DV.
Sigurður skrifaði færslu á Facebook að kvöldi jóladags þar sem hann greindi frá því að syni hans, Árna Þórði, væri haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans vegna alvarlegrar líffærabilunar. Hvatti Sigurður vini sína til að biðja fyrir Árna á þessum erfiðu tímum.
„Hann er í lífshættu og maður er náttúrulega niðurbrotinn. Þetta er fjölkerfa bilun í líffærum þannig að staðan er mjög þung og hún er mjög flókin en það er ekki búið að afskrifa neitt. Læknirinn orðaði það svona: „Við eigum ennþá eitthvað uppi í erminni.“ Þetta er meltingin, nýrun, brisið, lungun og fleira,“ sagði Sigurður í frétt DV undir kvöld í gær. Þá var sonur hans búinn að vera í öndunarvél í fimm daga og framfarir litlar.
Eðli málsins samkvæmt ríkir sorg hjá Sigurði og fjölskyldu hans á þessum tímum.
„Við reynum að standa saman, ég á góðar systur og aldraðan og góðan föður og tengdaforeldra sem öll eru af vilja gerð til að hjálpa. En það eina sem við getum gert er að vona og biðja,“ segir hann og bætir við að fjölskyldan hafi fengið magnaðan stuðning.
„Ég setti þessa færslu inn á Facebook bara í leit að hjálp. Það er lykilatriði í málinu og ég er búinn að fá ótrúleg viðbrögð frá fólki sem er að benda á læknamiðla og biðja fyrir honum. Það er mjög gott að finna stuðninginn, það er eiginlega ólýsanlegt, að finna að okkur er ekki sama hvort um annað. Svo verður tíminn bara að leiða í ljós hvað gerist. Þeir eru búnir að gefa það út, læknarnir, að af því hann er svona veikur að þá mun þetta taka, ef vel gengur, vikur eða mánuði.“