Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage sendir opið bréf á alla frambjóðendur til komandi sveitarstjórnarkosninga í vor þar sem hún lýsir reynslu sinni og sonar hennar á grunnskólakerfinu.Bréfið er birt á vef Vísis.
„Ég er móðir drengs sem er að klára sitt fyrsta ár í grunnskóla. Hann er einhverfur og með ADHD. Þegar hann fékk frumgreiningu, aðeins tveggja ára gamall varð ég óttaslegin um hvað biði hans. Aldrei hefði mig grunað að skólakerfið yrði mér erfiðast,“ segir hún.
Hann fékk mikinn stuðning í leikskóla og var í algjörri kúlu eins og hún orðar það.
„Um leið og hann hóf sína skólagöngu sprakk sú kúla algjörlega. Ég vil fá að taka það fram að starfsfólki grunnskólans er alls ekki um að kenna. Skólinn gerir það sem hann getur til þess að mæta honum en sökum fjármagns eða skorti á fjármagni er því miður ekki hægt að mæta honum þar sem hann er staddur.“
Syni hennar líður vel heima. „Í skólanum er hins vegar allt önnur saga. Þar tekur hann bræðisköst, bítur frá sér, sýnir mikinn mótþróa og oft stutt í grát. Þessi hegðun endurspeglar ekki drenginn minn heldur það umhverfi sem skólar bjóða upp á,“ segir hún.
„Flúorlýsing, plássleysi, hávaði í öðrum börnum, banana- eða kæfulykt um gangana, bleyta á gólfinu í fataklefanum o.s.frv. Þessir hlutir stuða kannski ekki hið hefðbundna barn en fyrir minn dreng er slíkt áreiti óbærilegt og hefur áhrif á hans líðan og hegðun.“
Aðeins er liðið eitt ár frá því að hóf skólagönguna. Níu ár eru eftir.
„Ég er ekki tilbúin að horfa upp á barnið mitt mistakast daglega næsta áratuginn því hann er settur í umhverfi sem hentar honum alls ekki,“ segir Kristín.
„Kæri frambjóðandi, tökum samtal, ekki bara fyrir barnið mitt heldur alla þá sem passa ekki í þann þrönga stakk sem skólakerfið bíður upp á. Það margborgar sig.“