„Auðvitað er þetta leiðinlegt; að vera nýflutt aftur og lenda í einhverju svona,“ segir séra Gunnar Einar Steingrímsson, prestur í Laufásprestakalli, í samtali við vef Fréttablaðsins.
Syni Einars, hinum 19 ára Steingrími Inga, bárust ógeðfelld skilaboð í nafnlausu bréfi sem kom inn um lúguna en þar var honum meðal annars sagt að fara úr bænum og drepa sig. Gunnar birti bréfið á Facebook-síðu sinni og segir hann mikilvægt að svona einelti fái ekki að viðgangast. Þá vill hann skila skömminni með því að opna á umræðu um málið.
„Skömmin er ekki hans og ekki okkar. Við skilum henni því til baka með því að birta bréfið,“ hefur Fréttablaðið eftir Gunnari. Gunnar segist sjálfur hafa orðið reiður en sonur hans, Steingrímur, sagt að sá sem sendi bréfið hlyti að líða illa. „Hann lætur þetta ekki á sig fá og segir þetta fyrsta aðdáandabréfið sem hann hefur fengið.“
Í fréttinni kemur fram að Gunnar hafi flust til landsins frá Noregi í janúar ásamt tveimur yngri börnum sínum en Steingrímur kom til landsins í marsmánuði. Steingrímur Ingi er mikill áhugamaður um fótbolta og æfir með liði Magna á Grenivík. Gunnar segir að sá sem sendi bréfið verði ekki kærður en þó verði rætt við lögregluna.
„Mín fyrsta hugsun var að birta þetta bréf og skila skömminni til baka. Þetta á ekki að viðgangast. Við viljum ekki benda á viðkomandi heldur vonum við bara að hann eða hún fái hjálp.“
Hér má lesa fréttina í heild sinni.