Sönnu Magdalenu Mörtudóttur var brugðið þegar hún sló texta úr vinsælu barnalagi inn í Google, lagi sem margir Íslendingar hafa eflaust sungið í leik- og grunnskólum á árum áður.
Sanna segir frá þessu á Facebook-síðu sinni, en hún var að undirbúa sig fyrir fræðsluerindi um rasisma hjá sjálfboðaliðum Stelpur rokka – verkefni sem hún segir bæði skemmtilegt og krefjandi.
„Þegar ég var að setja saman efni í glærupakkann minn, þá ákvað ég að leita að laginu um að allt sem væri „rautt væri fallegt fyrir vin minn litla indjánann og að allt sem væri svart væri fallegt fyrir vin minn svertingjann“.“
Sanna viðurkennir að hún hafi haldið að textinn myndi „poppa“ upp í tengslum við eitthvað gamalt sem tilheyrir fortíðinni. Raunin varð þó önnur eins og meðfylgjandi skjáskot sína.
„Aldrei hefði mér dottið í hug að það fyrsta sem google skilaði væri söngtexti á vefsíðu hjá leikskóla Reykjavíkurborgar. Textinn hefur verið eitthvað uppfærður frá fyrri tíð, því núna er allt sem er grænt fallegt fyrir „vin minn, litla Jón á Grund“ en ekki fyrir fólk frá Grænlandi og talað er um bláan vin frá Mars, ég man ekki eftir honum í fyrri lögum. Þetta finnst mér vera dæmi um hvernig hvítur húðlitur er viðmiðið í íslensku samfélagi og í samfélaginu yfirhöfuð, það þarf aldrei að gera sérstaklega grein fyrir honum og allir aðrir eru metnir út frá því, oft á neikvæðan hátt,“ segir Sanna.
Hún segist ekki vita hvort um sé að ræða einhvern gamlan texta á vef leikskólans sem á eftir að taka út eða hvort umræddur texti sé jafnvel enn sunginn.
„En ættu ekki leik- og grunnskólar reglulega að fara yfir efnið sitt og spyrja hvort að þetta sé besta leiðin til þess að fjalla um fjölbreytileika? Það eru þessir hversdagsleglegu þættir í kringum okkur sem við erum kannski ekkert mikið að spá í en svo þegar við syngjum upphátt, eru ekkert voða jákvæðir. Það er svo margt í kringum okkur sem er svo útilokandi fyrir margt fólk og mörg börn sem alast upp hér á landi og við þurfum að vera vakandi gagnvart og bregðast við.“
Sanna rifjar upp að í ársbyrjun, þann 7. janúar síðastliðinn, hafi hún lagt fram fyrirspurnir í borgarráði um viðbrögð við kynþáttafordómum í skólum. Fyrirspurnunum var vísað til skóla- og frístundasviðs og segir Sanna að þeim hafi ekki enn verið svarað – tæpum fimm mánuðum síðar.